Mælingar sem nemendur FAS hafa gert á Suðausturlandi síðan 1990
Hér liggja talningar, skýrslur og myndir úr fjórum vöktunarverkefnum. Nemendur mæla, skrá og skila. Tölurnar eru settar inn eins og þær komu úr feltbókinni, líka þegar þær stangast á við það sem við áttum að fá.
Verkefnin eru hluti af áföngunum AUUM1AU05 og INGA1NR05. Náttúrustofa Suðausturlands og Fuglaathugunarstöð Suðausturlands koma með í ferðirnar og hjálpa við talningar.
Litlabrú 2, 780 Höfn í Hornafirði
Verkefnin
Álftir taldar á þremur stöðum við Lónsfjörð, ásamt vatnssýnum og ruslmælingum.
Snið frá Bræðslu yfir í Hellirinn, talið gangandi með kíki og fjarsjá.
Heinabergsjökull mældur árlega frá 2001, auk eldri mælinga á Fláajökli og Brókarjökli.
Fimm 25 fermetra reitir, birki og víðir talin og einstakar plöntur mældar árlega.
Hvernig gögnin eru unnin
Haustið 2016 komust nemendur að því að eldri jöklamælingar voru of stuttar. Jakar í lóninu framan við Heinabergsjökul höfðu verið taldir hluti af jöklinum, en gervihnattamyndir sýndu vatn báðum megin við þá. Það er skráð hér eins og annað.
Vantar tölu í töflu þýðir að skýrslan er til en talan hefur ekki verið slegin inn. Við giskum ekki. Árið 2020 var ekki farið í álftatalningu vegna COVID-19 og það stendur sem eyða, ekki sem núll.
